Samantekt um þingmál

Almannatryggingar

437. mál á 150. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að breyta lagaskilyrðum fyrir töku hálfs ellilífeyris frá 65 ára aldri. Breytingunum er ætlað að verða til þess að fjölga í þeim hópi einstaklinga á ellilífeyrisaldri sem geta átt kost á hálfum lífeyri úr almannatryggingum á móti hálfri lífeyrissjóðsgreiðslu úr lífeyrissjóði.

Helstu breytingar og nýjungar

Breytingarnar sem í frumvarpinu felast eru í þrennu lagi: 1) Felld verði niður krafa um að samanlagður lífeyrisréttur umsækjanda úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóði og almannatryggingum jafngildi fullum ellilífeyri almannatrygginga; 2) hálfur lífeyrir verði tekjutengdur og sett verði almennt frítekjumark sem gildi um allar tekjur; og 3) það verði skilyrði fyrir heimild til töku hálfs lífeyris að lífeyrisþeginn sé á vinnumarkaði, að hámarki í 50% starfi.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um almannatryggingar, nr. 100/2007.

Kostnaður og tekjur

Ekki liggur fyrir mat á áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 26.06.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.