58. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 30. maí 2016 kl. 09:40


Mættir:

Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:40
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 09:40
Elín Hirst (ElH), kl. 09:40
Róbert Marshall (RM), kl. 09:40
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:45
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:40

Haraldur Einarsson boðaði forföll.
Birgir Ármannson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Ásta Guðrún Helgadóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:40
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 638. mál - fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018 Kl. 09:40
Á fund nefndarinnar komu Sigurbergur Björnsson frá innanríkisráðuneyti og Hreinn Haraldsson og Eiríkur Bjarnason frá Vegagerðinni.

3) 672. mál - ný skógræktarstofnun Kl. 10:30
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt sem var samþykkt af öllum viðstöddum.

Að áliti nefndarinnar standa: HöskÞ, KaJúl, ElH, SSv, RM, VilÁ.

4) 673. mál - Vatnajökulsþjóðgarður Kl. 10:35
Nefndin fjallaði um málið.

5) 328. mál - notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum Kl. 10:55
Nefndin ræddi málið og formaður dreifði drögum að nefndaráliti.

6) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00