59. fundur
fjárlaganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, föstudaginn 10. maí 2024 kl. 10:03


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 10:03
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 10:03
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 10:03
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:03
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 10:03
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:03
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 10:03
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 10:03
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:03
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:03

Njáll Trausti Friðbertsson og Teitur Björn Einarsson tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Frumvarp til fjáraukalaga Kl. 10:03
Til fundarins komu Hlynur Hreinsson, Marta Birna Skúladóttir og Sigurður Gunnar Sigurðsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau kynntu frumvarpið og svöruðu síðan spurningum nefndarmanna úr efni þess.

2) Önnur mál Kl. 10:50
Rætt var um næstu skref við vinnslu frumvarpsins. Samþykkt var að nefndin óski eftir minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um rökstuðning fyrir að útgjaldatilefni frumvarpsins falli að 26. gr. laga um opinber fjármál. Einnig var óskað eftir minnisblaði um mat á aðhaldsstigi ríkisfjármála.
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:55
Fundargerð 58. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:56