Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 551, 135. löggjafarþing 91. mál: stjórn fiskveiða (veiðigjald fyrir þorsk og rækju).
Lög nr. 151 19. desember 2007.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 21. gr. skal við ákvörðun veiðigjalds miða við 4,8% í stað 9,5% fiskveiðiárin 2007/2008 og 2008/2009.
Á fiskveiðiárunum 2007/2008 og 2008/2009 skal ekki innheimta veiðigjald vegna úthlutunar veiðiheimilda í þorski. Fiskistofa skal endurgreiða veiðigjald sem innheimt hefur verið á fiskveiðiárinu 2007/2008 vegna úthlutunar í þorski og ofgreitt veiðigjald vegna úthlutunar í öðrum tegundum sem þegar hefur verið innheimt. Skiptist veiðigjaldið á fleiri gjalddaga, sbr. 1. mgr. 23. gr., skal ofgreitt gjald koma til frádráttar á næsta gjalddaga.
Þingskjal 551, 135. löggjafarþing 91. mál: stjórn fiskveiða (veiðigjald fyrir þorsk og rækju).
Lög nr. 151 19. desember 2007.
Lög um breytingu á lögum nr. 116 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða II í lögunum orðast svo:Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 21. gr. skal við ákvörðun veiðigjalds miða við 4,8% í stað 9,5% fiskveiðiárin 2007/2008 og 2008/2009.
Á fiskveiðiárunum 2007/2008 og 2008/2009 skal ekki innheimta veiðigjald vegna úthlutunar veiðiheimilda í þorski. Fiskistofa skal endurgreiða veiðigjald sem innheimt hefur verið á fiskveiðiárinu 2007/2008 vegna úthlutunar í þorski og ofgreitt veiðigjald vegna úthlutunar í öðrum tegundum sem þegar hefur verið innheimt. Skiptist veiðigjaldið á fleiri gjalddaga, sbr. 1. mgr. 23. gr., skal ofgreitt gjald koma til frádráttar á næsta gjalddaga.
2. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum:- Í stað orðanna „og 2007/2008“ í 1. mgr. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: 2007/2008 og 2008/2009.
- Í stað orðanna „og 2008“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: 2008 og 2009.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 14. desember 2007.