Ferill 918. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1611  —  918. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (barnabætur, sérstakur vaxtastuðningur).

(Eftir 2. umræðu, 30. apríl.)


1. gr.

    Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    a. (I.)
    Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. A-liðar 68. gr. skal ákvarða og greiða barnabætur við álagningu opinberra gjalda á árinu 2024 á eftirfarandi hátt:
    Greiða skal tekjutengdar barnabætur með hverju barni innan 18 ára aldurs á tekjuárinu sem árlega skulu nema 328.000 kr. Tekjutengdar barnabætur með hverju barni einstæðra foreldra skulu vera 489.000 kr. Barnabætur samkvæmt þessari málsgrein skerðast í jöfnu hlutfalli við tekjuskattsstofn umfram 11.000.000 kr. hjá hjónum og umfram 5.500.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Með tekjuskattsstofni í þessu sambandi er átt við tekjur skv. II. kafla að teknu tilliti til frádráttar skv. 1., 3., 4., 5. og 7. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. og frádráttar skv. 31. gr. Skerðingarhlutfallið skal vera 4% með öllum börnum óháð fjölda þeirra. Til viðbótar barnabótum samkvæmt þessari málsgrein skal greiða tekjutengdar barnabætur með hverju barni yngra en sjö ára á tekjuárinu. Skulu þær árlega nema 130.000 kr. og skal skerðingarhlutfall þeirra vera 4% með hverju barni af tekjuskattsstofni umfram 11.000.000 kr. hjá hjónum og umfram 5.500.000 kr. hjá einstæðu foreldri.

    b. (II.)
    Við álagningu opinberra gjalda á árinu 2024 skal ákvarða mönnum sérstakan vaxtastuðning á eftirfarandi hátt:
     1.      Stofn til útreiknings sérstaks vaxtastuðnings skal vera 23% af vaxtagjöldum ársins 2023 vegna lána sem tekin hafa verið vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota, þ.m.t. eru kaup á búseturétti samkvæmt lögum um húsnæðissamvinnufélög og kaup á eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð samkvæmt lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins.
     2.      Stofn skv. 1. tölul. skerðist hlutfallslega fari eignir skv. 72. gr., að frádregnum skuldum skv. 1. mgr. 75. gr., fram úr 18.000.000 kr. hjá einstaklingi eða einstæðu foreldri og 28.000.000 kr. hjá hjónum eða sambýlisfólki. Skerðingarhlutfallið skal vera 0,5% af hreinni eign skv. 1. málsl.
     3.      Stofn skv. 1. tölul. skerðist í jöfnu hlutfalli við tekjuskattsstofn umfram 6.000.000 kr. hjá einstaklingi eða einstæðu foreldri og 9.600.000 kr. hjá hjónum eða sambýlisfólki. Með tekjuskattsstofni samkvæmt þessari grein er átt við sama stofn og vaxtabætur eru ákvarðaðar út frá, sbr. B-lið 68. gr., sbr. og ákvæði til bráðabirgða XLI, eftir því sem við á. Skerðingarhlutfallið skal vera 4% af tekjuskattsstofni.
     4.      Sérstakur vaxtastuðningur skal ákvarðaður sem stofn skv. 1. tölul. að teknu tilliti til skerðinga skv. 2. og 3. tölul. en þó ekki hærri en 150.000 kr. á ári fyrir hvern mann, 200.000 kr. á ári fyrir einstætt foreldri og 250.000 kr. fyrir hjón eða sambýlisfólk sem uppfyllir skilyrði fyrir samsköttun, sbr. 3. mgr. 62. gr., í lok tekjuárs. Hámark sérstaks vaxtastuðnings hjá þeim sem skattskyldir eru skv. 1. gr. hluta úr ári ákvarðast í hlutfalli við dvalartíma á árinu.
     5.      Sérstakur vaxtastuðningur skal birtur í niðurstöðu álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2024. Á tímabilinu 1.–30. júní 2024 getur hver sá sem hefur fengið ákvarðaðan sérstakan vaxtastuðning valið á þjónustusíðu sinni á skattur.is inn á hvaða lán, sbr. 1. tölul., skuli greiða greinda fjárhæð, eða eftir atvikum til jafnrar lækkunar á afborgunum tiltekins láns út árið 2024 þar til fjárhæðinni er allri ráðstafað. Ákvörðun um ráðstöfun er bindandi en ef ekkert er valið skal greiða inn á það lán sem er með hæstu eftirstöðvar samkvæmt skattframtali. Komi til uppgreiðslu eða endurfjármögnunar láns þar sem valin hefur verið jöfn lækkun á afborgunum skal sú fjárhæð sérstaks vaxtastuðnings sem þá stendur eftir greiðast inn á það lán sem sætir uppgreiðslu eða endurfjármögnun og ef við á til greiðslu uppgreiðslugjalds. Sérstökum vaxtastuðningi verður ekki skuldajafnað eins og mælt er fyrir um í 14. mgr. B-liðar 68. gr. Sérstakur vaxtastuðningur, sem er lægri en 5.000 kr. á mann, fellur niður.
     6.      Ríkisskattstjóri skal á tímabilinu 1.–31. júlí 2024 afhenda Fjársýslunni upplýsingar um ákvörðun sérstaks vaxtastuðnings og inn á hvaða lán eða afborganir skal greiða, sbr. 5. tölul., á tímabilinu. Að lokinni kærumeðferð skv. 1. mgr. 99. gr. og leiðréttingum skv. 2. mgr. 101. gr. skal ríkisskattstjóri jafnframt á tímabilinu 1.–31. desember 2024 afhenda Fjársýslunni upplýsingar skv. 1. málsl. Fjársýslan greiðir sérstakan vaxtastuðning og miðlar upplýsingum á tímabilinu 1.–15. ágúst til lánveitenda sem ráðstafa greiðslunum beint inn á lán, og ef við á til greiðslu uppgreiðslugjalds, eða afborganir á tímabilinu 16.–31. ágúst í samræmi við 5. tölul. Séu lán í vanskilum fer um greiðsluna eftir hefðbundinni greiðsluröð samkvæmt lánaskilmálum. Hafi lántakandi notið greiðslujöfnunar á grundvelli laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga skal fyrst greiða inn á skuld á jöfnunarreikningi. Ráðstafi lánveitandi ekki greiðslu inn á lán eða afborganir í samræmi við ákvæði þetta skal hann endurgreiða Fjársýslunni þá fjárhæð sem ekki var ráðstafað. Greiðsla sérstaks vaxtastuðnings telst eign ríkissjóðs þar til ráðstöfun hennar hefur farið fram.
     7.      Ákvörðun sérstaks vaxtastuðnings er bundin við árið 2024, þ.e. frumákvörðun við álagningu 2024 skv. 98. gr., breytingar vegna kæru á þeirri álagningu skv. 99. gr. og eftir atvikum leiðréttingar skv. 2. mgr. 101. gr., allt innan ársins 2024. Komi í ljós, sbr. ákvæði 96. gr., að sérstakur vaxtastuðningur hafi á sínum tíma verið ákvarðaður of hár miðað við leiðréttan grundvöll skattlagningar þess árs, þá stofnast krafa vegna þess mismunar en ekki verður gerð breyting á framkvæmdri ráðstöfun inn á lán. Um rétt til sérstaks vaxtastuðnings gilda að öðru leyti ákvæði B-liðar 68. gr., sbr. og ákvæði til bráðabirgða XLI, eftir því sem við á.
     8.      Sérstakur vaxtastuðningur samkvæmt ákvæði þessu telst ekki til skattskyldra tekna og kemur til viðbótar vaxtabótum skv. B-lið 68. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða XLI.
    Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um framkvæmd sérstaks vaxtastuðnings á grundvelli þessa ákvæðis.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við ákvörðun barnabóta og sérstaks vaxtastuðnings við álagningu opinberra gjalda á árinu 2024.