Ferill 503. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 558  —  503. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um bætur vegna biðlista eftir nauðsynlegum aðgerðum.


Flm.: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bergþór Ólason.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að hefja vinnu við gerð frumvarps um að greiða bætur til einstaklinga sem hafa beðið á biðlistum eftir nauðsynlegum aðgerðum í opinbera heilbrigðiskerfinu lengur en í þrjá mánuði. Ráðherra upplýsi Alþingi um vinnu frumvarpsins á vorþingi 2024.

Greinargerð.


    Með þingsályktunartillögunni er ráðherra gert að hefja vinnu við gerð frumvarps um að hafi sjúklingur þurft að bíða lengur en í þrjá mánuði eftir nauðsynlegum aðgerðum í heilbrigðiskerfinu skuli ríkið greiða viðkomandi bætur mánaðarlega.
    Með þessari vinnu telja flutningsmenn að skapaður verði ákveðinn hvati fyrir bæði ráðherra og heilbrigðiskerfið til að bæta opinbera heilbrigðisþjónustu og fækka biðlistum. Ljóst er að leita þarf leiða til að stytta tíma á biðlistum eftir nauðsynlegum aðgerðum.
    Biðlistar hafa lengst síðustu ár og hægt hefur gengið að vinna á biðlistum í heilbrigðiskerfinu. Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 segir að aðgengi landsmanna að þjónustu sé á sumum sviðum misjafnt eftir búsetu, biðlistar eftir tilteknum aðgerðum of langir og þörfum fólks fyrir samfellda þjónustu ekki mætt sem skyldi. Jafnframt segir í skýrslunni að bregðast þurfi við biðlistum þar sem biðlistar eftir tilteknum aðgerðum séu í sumum tilvikum úr hófi langir.
    Með þessari þingsályktunartillögu telja flutningsmenn að bæta megi samfélagið, þar sem einstaklingur sem þarf í nauðsynlega aðgerð og kemst fyrr að kemst fyrr út í samfélagið og mun það hafa minni áhrif á líf þess einstaklings.
    Markmið þingsályktunartillögunnar er að stuðla að betra heilbrigðiskerfi og að tryggja einstaklingum jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu, óháð aldri og heilsufari.