Ferill 757. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1839 —  757. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Halldóru Mogensen um leiðréttingu búsetuhlutfalls örorkulífeyrisþega.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir örorkulífeyrisþegar fá eða hafa fengið endurskoðun og leiðréttingu búsetuhlutfalls í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis nr. 8955/2016?
     2.      Hversu margir þeirra hafa þegar fengið leiðréttingu búsetuhlutfalls og hversu margir bíða enn niðurstöðu Tryggingastofnunar?
     3.      Fyrir hversu marga hefur Tryggingastofnun ekki hafið vinnu við leiðréttingu búsetuhlutfalls?
     4.      Hversu margir umsækjendur um frummat hafa fengið fyrsta 75% örorkumat frá Tryggingastofnun frá og með 20.6.2018?
     5.      Hversu margir þeirra sem hafa fengið fyrsta 75% örorkumat frá og með 20.6.2018 fá nú greiddan örorkulífeyri miðað við hlutfallslegan framreikning?
     6.      Hversu margir þeirra sem hafa fengið fyrsta 75% örorkumat frá og með 20.6.2018 hafa tímabundið fengið greiddan örorkulífeyri miðað við hlutfallslegan framreikning á meðan Tryggingastofnun leysir úr því hvaða búsetuhlutfall skuli miða við?


    Upplýsingar í svari þessu eru teknar saman af sérfræðingum hjá Tryggingastofnun ríkisins og miða við stöðuna 7. maí sl.
    Hinn 7. maí 2021 höfðu 637 einstaklingar fengið leiðréttingu búsetuhlutfalls. 536 einstaklingar til viðbótar hafa fengið bréf tengt búsetuleiðréttingu, vinnsla þeirra mála er hafin en niðurstaða liggur ekki fyrir. Ekki er hafin leiðrétting hjá 224 einstaklingum. Þar af eru 96 látnir en mál 128 einstaklinga sem eru búsettir erlendis en eiga einhver réttindi hjá TR eru í skoðun þar sem um er að ræða vafamál og því ekki unnt að hefja leiðréttingu búsetuhlutfalls.
    Frá 20. júní 2018 hafa 3.404 einstaklingar fengið samþykkt 75% örorkumat. Þar af hefur 401 einstaklingur ekki öðlast fullan rétt til greiðslna á grundvelli búsetu hér á landi en 40 þeirra fá greitt miðað við hlutfallslegan framreikning. 213 einstaklingar fá tímabundið greiddan örorkulífeyri miðað við hlutfallslegan framreikning á meðan leyst er úr því við hvaða búsetuhlutfall skuli miða.