Ferill 117. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 117 . mál.


137. Frumvarp til laga



um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.)



1. gr.


    Lög þessi gilda um aðilaskipti eða samruna fyrirtækja, atvinnurekstrar eða hluta atvinnurekstrar á hinu Evrópska efnahagssvæði að svo miklu leyti sem atvinnureksturinn heyrir undir íslenska lögsögu.
     Lög þessi gilda þó ekki þegar bú fyrirtækis er tekið til gjaldþrotaskipta.
     Lög þessi gilda ekki um haffær skip.

2. gr.


    Frá og með þeim degi sem aðilaskipti verða, sbr. 1. gr., tekur nýr atvinnurekandi við öllum réttindum og skyldum, sem fyrri atvinnurekandi bar gagnvart starfsmönnum í fyrirtækinu eða atvinnurekstrinum, að því er snertir ráðningarkjör, þar með talin áunnin réttindi svo og önnur starfsskilyrði.

3. gr.


    Aðilaskipti, sbr. 1. gr., geta ein sér ekki verið ástæða fyrir uppsögn starfsmanna af hálfu atvinnurekanda hvorki fyrir né eftir aðilaskipti. Ákvæði þetta kemur þó ekki í veg fyrir uppsagnir starfsmanna af efnahagslegum, tæknilegum eða skipulagslegum ástæðum sem hafa í för með sér breytingar á starfsmannahaldi.
     Sé ráðningarsamningi rift vegna þess að aðilaskipti hafa í för með sér verulegar breytingar á starfsskilyrðum starfsmanni í óhag skal litið svo á að atvinnurekandi beri ábyrgð á riftun samningsins.

4. gr.


    Þegar aðilaskipti verða skal trúnaðarmaður halda réttarstöðu sinni og starfi samkvæmt lögum og samningum að svo miklu leyti sem atvinnureksturinn heldur sjálfstæði sínu.
     Ef trúnaðarmaður missir umboð sitt vegna aðilaskiptanna skal hann eftir sem áður njóta þeirrar verndar sem lög eða samningar kveða á um.

5. gr.


    Aðilaskipti, sbr. 1. gr., skulu þeir sem hlut eiga að máli tilkynna trúnaðarmanni starfsmanna eða starfsmönnum sjálfum sé trúnaðarmaður ekki fyrir hendi með góðum fyrirvara og áður en aðilaskipti koma til framkvæmda. Jafnframt skal upplýsa hlutaðeigandi um ástæður aðilaskipta, um lagalegar, efnahagslegar og félagslegar afleiðingar þeirra fyrir starfsmenn og um fyrirhugaðar ráðstafanir vegna starfsmanna.

6. gr.


    Hafi atvinnurekandi í huga að gera ráðstafanir vegna starfsmanna vegna aðilaskipta, sbr. 1. gr., skal hann hafa samráð við trúnaðarmann starfsmanna í því skyni að ná samkomulagi um þær. Samráð skal hafa með góðum fyrirvara og áður en fyrirhugaðar ráðstafanir koma til framkvæmda.

7. gr.


    Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði öðlast gildi að því er Ísland varðar.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er lagt fyrir Alþingi vegna fullgildingar samnings um aðild Íslands að Evrópsku efnahagssvæði. Með samþykkt frumvarpsins eru lögfestar reglur sem settar eru fram í tilskipun Evrópubandalagsins nr. 77/187/EBE um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vernd launþega við eigendaskipti að fyrirtækjum, atvinnurekstri eða hluta atvinnurekstrar. Samkvæmt 8. gr. tilskipunarinnar og með vísan til samnings um Evrópskt efnahagssvæði skulu aðildarríkin setja nauðsynleg lög og stjórnvaldsfyrirmæli til að hrinda markmiðum hennar í framkvæmd.
     Frumvarpið er samið af nefnd sem félagsmálaráðherra skipaði til að undirbúa aðild Íslands að frjálsum atvinnu- og búseturétti á Evrópsku efnahagssvæði. Nefndinni var einnig falið að fjalla um þann þátt félagsmála sem snertir samtök aðila vinnumarkaðarins. Í nefndina voru skipuð:
    Frá félagsmálaráðuneyti: Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri, formaður, Gylfi Kristinsson deildarstjóri og Þórhildur Líndal deildarstjóri.
     Frá Alþýðusambandi Íslands: Ari Skúlason hagfræðingur og Lára V. Júlíusdóttir framkvæmdastjóri.
     Frá Vinnuveitendasambandi Íslands: Hrafnhildur Stefánsdóttir lögfræðingur og Kristján Jóhannsson hagfræðingur.
     Samkvæmt skipunarbréfi var hlutverk nefndarinnar að koma með tillögur um það hvernig tryggt verði í framkvæmd að Ísland uppfylli þær reglur sem gilda munu á sviði félags- og vinnumála á Evrópska efnahagssvæðinu á sama tíma og tryggt verði að aðilar vinnumarkaðarins geti fylgst með atvinnuþátttöku útlendinga hér á landi og að íslenskum kjarasamningum og íslenskum lögum sé framfylgt.
     Efni tilskipunar Evrópubandalagsins nr. 77/187/EBE er ekki að finna í íslenskri löggjöf. Þess má geta að í bókun 1 við kjarasamning helstu samtaka á vinnumarkaði, sem undirritaður var 1. maí 1989, er kveðið á um nokkur atriði sem fjallað er um í framangreindri tilskipun Evrópubandalagsins. Með hliðsjón af því og ákvæði 8. gr. tilskipunarinnar var nefndin sammála um að rétt væri að taka upp í sérlög efni tilskipunar nr. 77/187/EBE. Með þeim hætti er valin sama leið og t.d. dönsk stjórnvöld hafa farið. Norðmenn hafa hins vegar valið að gera breytingar á vinnuverndarlöggjöfinni þar sem sambærileg ákvæði er að finna.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í þessari grein er lagt til að meginreglan verði sú að ákvæði fyrrgreindrar tilskipunar nr. 77/187/EBE, sem ætlað er að lögfesta með frumvarpi því sem hér liggur fyrir, taki til aðilaskipta að fyrirtækjum, atvinnurekstri eða einungis hluta atvinnurekstrar með þeirri undantekningu þó sem er að finna í 2. mgr. greinarinnar. Með aðilaskiptum er samkvæmt frumvarpi þessu átt við þau tilvik þegar nýr aðili, einstaklingur eða lögaðili, verður lagalega ábyrgur fyrir rekstri fyrirtækis, atvinnurekstrar eða hluta hans. Afgerandi er einnig í því sambandi hvort fyrirtækið eða sá hluti þess, sem framseldur er, heldur áfram rekstri með sama eða svipuðum hætti og áður. Aðilaskipti geta átt sér stað með framsali kröfuréttinda á grundvelli kaupsamnings sem og leigusamnings. Ákvæði þessa frumvarps eiga einnig við þegar samruni fyrirtækja á sér stað. Þá er sá möguleiki og fyrir hendi að aðilaskipti geti orðið í öðrum tilvikum, svo sem við nauðungarsölu (uppboð) á fyrirtæki.
     Undantekningarregla sú, sem er að finna í 2. mgr., verður að teljast sjálfsögð með hliðsjón af eðli skipta sem þessara.
     Breyting á eignaraðild að hlutabréfum hlutafélaga telst ekki aðilaskipti í merkingu laga þessara þar sem sami lögaðili er eftir sem áður ábyrgur fyrir rekstri fyrirtækisins og þar af leiðandi vinnuveitandi starfsmanna.

Um 2. gr.


     Samkvæmt þessari grein tekur nýr atvinnurekandi við öllum réttindum og skyldum sem
fyrri atvinnurekandi bar gagnvart starfsmönnum á grundvelli ráðningarsambands þeirra. Í því felst að starfsmennirnir eru við aðilaskipti/samruna ráðnir áfram hjá hinum nýja atvinnurekanda á sömu kjörum og þeir nutu samkvæmt ráðningarsamningi/kjarasamningi hjá fyrri atvinnurekanda. Þessi réttindi og skyldur flytjast þannig sjálfkrafa án þess að til sérstakra ráðstafana þurfi að koma af hálfu þeirra aðila er hlut eiga að máli. Þetta gildir hins vegar einvörðungu um þá starfsmenn sem eru ráðnir hjá fyrri atvinnurekanda við aðilaskiptin.
     Sérstaklega er áréttað í greininni að áunnin réttindi skuli haldast gagnvart hinum nýja aðila. Er þar m.a. átt við orlofs- og veikindarétt starfsmanna en einnig má nefna í þessu sambandi uppsagnarrétt og rétt til starfsaldurshækkana í launum sem starfsmenn hafa áunnið sér samkvæmt ráðningar- eða kjarasamningi með starfi sínu hjá fyrri atvinnurekanda. Þá skulu skyldur þær, er hvíldu á starfsmönnum samkvæmt ráðningarsamningi/kjarasamningi gagnvart fyrri aðila, haldast gagnvart hinum nýja atvinnurekanda.

Um 3. gr.


     Í greininni er kveðið á um að aðilaskipti ein sér eða samruni geti ekki verið ástæða
fyrir uppsögnum starfsmanna í fyrirtæki. Hins vegar kemur þar fram að ekki er ætlunin með ákvæði þessu að hindra atvinnurekendur alfarið í því að segja starfsmönnum upp vinnu en þegar um slíkt er að ræða verður að vera unnt að rekja þær uppsagnir til efnahagslegra, tæknilegra eða skipulagslegra ástæðna sem hafa í för með sér breytingar á starfsmannahaldi í fyrirtækinu.

Um 4. gr.


    Samkvæmt þessari grein er aðalreglan sú að trúnaðarmaður starfsmanna í fyrirtæki heldur bæði réttarstöðu sinni sem slíkur, svo og starfi í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum hverju sinni þrátt fyrir aðilaskipti/samruna svo framarlega sem atvinnureksturinn heldur sjálfstæði sínu. Leiði aðilaskiptin hins vegar til þess að hann missi umboð sitt sem m.a. getur átt sér stað í kjölfar skipulagsbreytinga eða fækkunar starfsmanna skal hann eftir sem áður njóta þeirrar verndar sem lög og samningar kveða á um. Í þessu sambandi má benda á 11. gr. laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur.

Um 5. gr.


    Í greininni er kveðið á um skyldu þeirra atvinnurekenda, sem aðilaskipti/samruni varða, til að tilkynna trúnaðarmanni starfsmanna ráðgerð aðilaskipti að fyrirtæki með góðum fyrirvara og áður en þau koma til framkvæmda. Einnig hvílir á sömu aðilum skylda til að upplýsa starfsmenn um þær lagalegu, félagslegu og efnahagslegu afleiðingar sem aðilaskiptin geta haft í för með sér fyrir starfsmennina. Þá ber þessum aðilum að gera starfsmönnum grein fyrir ráðstöfunum sem ætlunin kann að vera að gera þeirra vegna.

Um 6. gr.


    Liggi það fyrir að atvinnurekandi ætli sér að gera einhverjar ráðstafanir vegna starfsmanna í kjölfar aðilaskipta/samruna ber honum samkvæmt þessu ákvæði að hafa samráð við trúnaðarmann starfsmanna í þeim tilgangi að ná um þær samkomulagi.

Um 7. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.